Vinkonukvöldið 2006 var haldið hátíðlegt föstudaginn 20.
okt.
Okkar konur hafa séð um veislustjórn í gegnum tíðina og staðið sig með
stakri prýði. Nú var ákveðið að fá utanaðkomandi veislustjóra og þar sem við
erum svo góðu vanar frá okkar félögum dugði ekkert annað en að fá Eddu
Björgvinsdóttur til að halda utan um herlegheitin.
Jón Sigurðsson idol stjarna mætti einnig á staðinn og söng að sjálfsögðu
eins og engill.
|
Janúarfundurinn var haldinn í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja þar sem við æfðum okkur í vefdagbókinni og að panta
NuSkin vörur af Netinu. |
|
Á jólafundinum fengum við góða heimsókn frá
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Hulda Guðmundsdóttir guðfræði-
og djáknanemi flutti okkur jólahugvekju og flytjum við henni bestu
þakkir fyrir. |
Í nóvember heimsóttum við listakonuna Fríðu.
Lokafundurinn var haldinn á Hótel Rangá 7. maí 2005
Eins og alltaf skemmtum við okkur konunglega.
Fengum leiðsögn Lárusar Bragasonar um Fljótshlíðina. Hann fræddi okkur um
sögupersónur Njálu, landslag og merkisstaði í þessum hluta Rangárþings.
Einnig fræddi hann okkur um gamla þjóðtrú eins og að djöfullinn byggi í
Heklu, talaði dönsku og nærðist á dönskum kóngum.
Við stoppuðum í Hlíðarenda fengum söguna beint í æð og borðuðum síðan nestið
okkar :-)
Um kvöldið fóru síðan fram stjórnarskipti og konur fengu viðeigandi
viðurkenningar. Eftir það tók skemmtinefndin við og trallaði með
mannskapinn.
Hjólakeppnin mæltist
vel fyrir
5. apríl fengum við Birgittu Jónsdóttur náttúrulækni í
heimsókn. Einnig flutti Jana okkur nokkra Lions mola.
Fengum góða heimsókn á febrúar fundinum. Þar voru á ferð
Geir Hauksson, umdæmisstjóri, Pálmi Hannesson, svæðisstjóri og Guðrún
Olgeirsdóttir starfsmaður ITC á Íslandi.
Á aukafundinum í desember tók listakonana Sossa á móti okkur og sagði okkur
ýmislegt um sig og listina. Sjón er sögu ríkari:
|
|
|
Listakonan Sossa
Þökkum kærlega fyrir skemmtilegar móttökur. |
|
|
|
|
Listrænir taktar.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlustað af athygli
|
|
|
|
Mættar voru...
|
|
|
|
Mættar voru...
|
|
|
|
|
|
Hanna, Sossa og Kolla
|
|
|
|
Lilja formaður og Sossa
Hér afhendir Lilja Sossu fána félagsins. |
|
|
| Jólafundurinn var haldinn 7. desember 2004 í Matarlyst. Við fengum
góða gesti frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Sóley Halla fékk 15 ára merki Lions og Kolbrún, Ingibjörg Elín og
Rannveig fengu merki alþjóðaforseta vegna leiðtogaskólans. |
| |
|
| Hér koma nokkrar myndir frá vinkonukvöldinu sem var haldið 22. okt.
2004 í KK húsinu. Þema kvöldsins var: Bleikt og blátt. |
|
|
| Óvissuferðin var farin 25. sept. 2004
|
Allir Lionsklúbbar á Suðurnesjum tóku sig saman í dag og unnu mikið og
gott sjálfboðastarf við að hressa upp á lóð Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Þar var að mörgu að hyggja en mesta bar á því að skipt var um girðinguna í
kringum garðinn, en hún er 144m löng.
Sjálfboðaliðarnir létu ekki þar við sitja heldur skröpuðu gamla málningu
af húsinu og hefðu málað ef veðrið hefði verið betra. Þá tóku þau að sér
hin ýmsu vorverk eins og að þrífa stéttirnar og þar fram eftir götunum.
Áætlað var að um 60 manns hefðu þegar mætt á svæðið í hádeginu og var
jafnvel von á fleirum. Kalka, Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, mun svo sjá um
að fjarlægja og eyða öllu rusli sem fellur til án endurgjalds.
|
Lokafundurinn var haldinn að Flúðum 8. maí 2004
Eftirfarandi myndir eru úr ferðinni. Eins og sjá má var mikið fjör hjá
okkur. Við fengum leiðsögumann sem leiddi okkur um svæðið. Fórum í leiki,
borðuðum nesti og slökktum þorsta. Skoðuðum jarðarberja- og tómataræktun.
Um kvöldið var haldinn lokafundur, þar sem konur voru heiðraðar fyrir 10
og 15 ára starf innan Lionshreyfingarinnar. Fram fóru stjórnarskipti og
skemmtinefnd sá um söng, happdrætti og gleðisögur. |
1. maí 2004
Vímuvarnardagurinn.
Komum saman við tjaldmiðstöðina Stekk og fórum í ratleik með börnunum. Að
loknum ratleik var boðið uppá Svala, PrinsPólo, kaffi og kökur. |
Myndir frá afhendingu sjónvarps og hægindastóls á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í mars 2003
Hátíðarfundur haldinn í Stapanum 1. apríl 2003. 2 nýir félagar gengu í klúbbinn - þær
heita Valdís og Ingibjörg Elín (Ella). Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar.